Lykilorð Capture
Shrek hinn þriðji 2007
Þegar faðir Fíónu, konungur Langt langt í burtistan, deyr, erfir tröllið Shrek krúnuna þar sem hann er giftur dóttur hans. En Shrek ákveður leita að réttum erfingja krúnunnar, Artie, í fjarlægu konungsríki ásamt vinum sínum Asna og Stígvélaða kettinum, til að hann sjálfur geti snúið aftur heim í fenin ásamt Fiana sem er vanfær. Á meðan, þá er hinn öfundsjúki og metnaðarfulli Prince Charming, að undirbúa byltingu ásamt þorpurum úr ævintýrum, til að geta sjálfur orðið konungur.
Ferdinand 2017
Allt frá því að nautið Ferdinand var kálfur hefur hann verið ólíkur öðrum nautum. Á meðan aðrir kálfar vildu helst stangast á og létu sig dreyma um að komast í nautaatshringinn í Madrid hafði Ferdinand mun meiri áhuga á að njóta náttúrunnar, blómanna og litanna sem umhverfi hans býður upp á, auk þess sem hann getur ekki hugsað sér að gera flugu mein. En örlögin haga því samt svo að Ferdinand er fyrir misskilning sendur til Madridar til að berjast og verður með aðstoð nokkurra félaga sinna að losa sig úr ánauðinni og finna leiðina heim áður en það er orðið of seint.




















