Bolti 2008
Bolti er meira en venjulegur hundur - hann er ofurhetja... eða hann heldur það alla vega. Þar sem hann var alinn upp á tökusetti eins vinsælasta þáttar í Bandaríkjunum þá telur Bolti að hann búi yfir undraverðum kröftum. Þegar hann er óvart sendur til New York borgar þá reynir á þessa hæfileika, en hann kemst fljótt að því að hann hefur lifað í lygi, eða hvað? Bolti fer, ásamt yfirgefnu kisunni Mittens og brjálaða hamstrinum Rhino, í ævintýraferð þar sem hann verður að nota alla sína krafta til að komast aftur á heimaslóðir.
























