Lilo & Stitch 2002
Saga af lítilli geimveru, Stitch, sem varð til við genatilraun og er í fangelsi á fjarlægri plánetu ásamt illum skapara sínum. Stitch sleppur úr prísundinni og fer til Jarðar þar sem hann reynir að líkja eftir hundi þar til Lilo tekur hann að sér, en Stitch sér fyrir sér að Lilo geti orðið mannlegur skjöldur fyrir hann þegar geimverurnar koma til að ná í hann aftur. En smátt og smátt fer Stitch að skilja betur hvað ást og fjölskylda þýða og tilfininngar hans í garð Lilo byrja að breytast.


















