Lego Ninjago myndin 2017
Langt, langt í burtu er eyjan og borgin Ninjago. Þar búa þau Lloyd, Jay, Kai, Cole, Zane og Nya sem á daginn þurfa að glíma við skólann, skólalífið og öll hin hversdagsmálin en á kvöldin við alls konar skrímsli og óvætti sem herja á Ninjago auk hins valdagráðuga og illa Lords Garmadon – sem er faðir Lloyds.










