Wall-e

Wall-e 2008

8.11

Árið er 2700 og WALL-E hefur eytt síðustu hundruðum ára einn að gera það sem hann var hannaður til að gera - að þrífa jörðina, en mennirnir skildu eftir sig svo mikið rusl að þeir þurftu að lokum að yfirgefa jörðina og finna nýtt heimili. Eftir allan þennan tíma í einsemd er WALL-E orðinn vægast sagt sérvitur og forvitinn, en hann safnar öllum munum sem hann kemst yfir. Einn daginn hittir hann vélmennið EVE og verður strax ástfanginn af henni. Uppúr þessu hefst ævintýraferð vélmennanna um himingeiminn og á leið sinni hitta þau ansi litríka persónuleika sem gera sitt besta í að hjálpa þeim að komast á leiðarenda....

2008

Simpson bíómyndin

Simpson bíómyndin 2007

7.02

Homer leggur á flótta ásamt fjölskyldu sinni, eftir að hafa fyrir slysni, orðið valdur að mestu mengun sem heimurinn hefur séð í einum smábæ. Það gerðist þegar hann sturtaði óvart úrgangi í vatnið og mengaði þar með vatnsból bæjarins. Á meðan líf bæjarbúa er í bráðri hættu og bærinn einangraður undir glerhjúpi, þarf Homer að vinna fjölskyldu sína til baka og að sjálfsögðu ratar hann í endalausa vitleysu.

2007

Yfir limgerðið

Yfir limgerðið 2006

6.59

Þvottabjörninn Rúni reynir að stela ruslmat og nammi frá birninum Víglundi en tekst ekki betur til en svo að maturinn glatast og Víglundur gómar hann. Þá verður Rúni að lofa nokkru ómögulegu, að útvega allan matinn á einni viku. Á sama tíma breytist líf saklausra skógardýra til muna þegar heilu hverfin hafa risið í kringum skóginn þeirra meðan þau lágu í vetrardvala. Í stað trjáa og berjarunna standa nú steypt hús. Dýrin vita ekkert um mennina og taugaveiklaði leiðtoginn þeirra, skjaldbakan Viddi, læðist inn í garðinn við eitt húsið og upplifir hryllinginn: Vatnsúðara, grilláhöld, jeppa og fjallahjól. En Rúni er líka mættur í hverfið. Hann veit að aðeins þar getur hann fundið nógu mikið ruslfæði til að þóknast birninum. Viddi snýr aftur í skóginn og lofar því að fara aldrei framar yfir gerðið en Rúni er ekki á sama máli. Hann veit að hann getur fengið hin dýrin til að hjálpa sér við að safna matnum handa Víglundi.

2006

The Wombles

The Wombles 1973

7.50

The misadventures of a small community dedicated to cleaning up litter and putting it to their own use.

1973

Wasteland

Wasteland 2022

7.00

Examine the terrible impact waste is having on America's waterways and the challenges people must overcome to preserve their health.

2022