Lykilorð Wretch
Ævintýralandið Narnía: Kaspían konungsson 2008
Framhald af myndinni Ljónið, nornin og skápurinn. Myndin byggir á bókinni um Kaspían konungsson sem er númer tvö í ritröð ævintýrabókanna um Narníu eftir C. S. Lewis. Eitt ár er liðið í mannheimum síðan ævintýrum Pevensie barnanna lauk í Narníu. Á þessu eina ári hafa 1300 ár liðið í Narníu og þar geysar nú borgarastyrjöld. Kaspían konungsson er réttborinn erfingi krúnunnar en frændi hans, skúrkurinn Míras, hindrar hann í að taka við völdum í Narníu. Kaspían blæs í töfrahorn Súsönnu til að fá aðstoð Pevensie barnanna. Pétur, Súsanna, Játvarður og Lúsía dragast inn í Narníu á ný og hjálpa Kaspían að steypa valdaræningjanum Mírasi af stóli. En þetta verður erfið barátta, því Kaspían hefur miklu minna herfylgi heldur en Míras.
Wyatt Earp 1994
Artúr og Mínimóarnir 2006
Artúr er líflegur 10 ára gamall drengur sem hefur í mörg horn að líta. Verktaki vill yfirtaka hús ömmu hans, og Artúr ætlar ekki að sitja aðgerðarlaus hjá. Kannski liggur lausnin í leynilegum fjársjóði afa hans, sem hefur verið týndur í mörg ár, sem er falinn einhversstaðar hinum megin, á landi Mínimóanna. Verurnar sem búa þar eru agnarsmáar, nokkrir millimetrar á hæð, og búa í fullkominni sátt og samlyndi við náttúruna. Artúr fer inn á þeirra land, og hittir þar Selenia prinsessu og bróður hennar Betemeche. Saman fara þau að leita fjársjóðsins sem mun bjarga ömmu hans.
The Medallion 2003
Firewalker 1986
Grettir 2 2006
Grettir er mættur aftur á svæðið og í þetta skiptið elta þeir, hann og Óðinn, eiganda sinn, Jón, til Englands. Þar er Grettir tekinn í misgripum fyrir aðalskött sem hefur erft kastala. Grettir nýtur nú lífsins í botn, en nú er ríki hans allt í einu í hættu! Hinn illi Lord Dargis er ákveðinn í að koma Gretti fyrir kattarnef, svo hann geti breytt kastalanum í sumardvalarstað. Hið nýja líf Grettis er því í miklu uppnámi!
The Golden Child 1986
Looney Tunes: Back in Action 2003
Daffy Duck er orðinn hundleiður á allri athyglinni sem Bugs Bunny, eða Kalli kanína, fær, og hættir störfum hjá myndverinu sem hann vinnur hjá í Hollywood. Hann slæst í lið með slökkviliðsmanninum sem er nýbúinn að missa vinnuna, Damien Drake Jr., sem var fenginn til að fylgja honum útaf stúdíólóðinni, og heldur af stað í ævintýraferð um allan heim, en Bugs og framkvæmdastjóri hjá Warner Bros, fylgja í humátt á eftir. En hvert er markmiðið með ferðinni? Jú, að finna föður Damien, og finna hinn týnda bláa demant, og vera skrefi á undan hinu illa Acme Corp. fyrirtæki, sem vill komast yfir demantinn og nota í eigin þágu.

















