Maura maðurinn

Maura maðurinn 2015

7.07

Mynd um ofurhetjuna Ant-Man sem hefur þann hæfileika að geta minnkað sig, en fær jafnframt ofurkrafta. Ant-Man er í raun ein af Avengers-hetjunum, en þar sem það hefur lengi staðið til, eða í tuttugu ár, að gera sérstaka mynd um þessa smáu og knáu ofurhetju var ákveðið að sleppa henni úr Avengers-myndunum. Myndin fylgir að stórum hluta fyrstu sögunni um Ant-Man og segir frá því þegar uppfinningamaðurinn Hank Pym velur þjófinn Scott Lang til að klæðast búningi hans og sinna mikilvægu verkefni.

2015

Maurahrellirinn

Maurahrellirinn 2006

5.77

Lucas Nickle er nýr í bænum, og aðal stríðsnispúkinn, Steve, notfærir sér það. Lucas fær nóg af stríðninni, og lætur það bitna á maurunum í garðinum heima hjá sér með margvíslegum hætti, t.d. með því að sprauta á þá eða trampa á búinu þeirra. Maurarnir fá að lokum nóg af þessu og Zoc, maura-töfralæknirinn, notar eitur til að minnka Lucas niður í maurastærð. Lucas þarf nú að þræla með maurunum og lærir að bera virðingu fyrir þeim og verður vinur þeirra. Hann verður svo hetja þegar Stan Beals, meindýraeyðirinn, sem er enn meiri fantur, kemur til að eyða öllu maurabúinu. Nú upphefst mikið stríð við Beals, og Zoc þarf að viðurkenna að Lucas sé líklega eina von mauranna til að lifa af.

2006

Micro Ventures

Micro Ventures 1968

5.40

Micro Ventures is an educational animated series created by Hanna-Barbera Productions which originally aired as a 4-minute segment on The Banana Splits Adventure Hour. It ran for only four episodes from November 9, 1968 to December 21, 1968 on NBC.

1968