Rango 2011
Kameljónið Rango dreymir um hetjudáðir og ævintýri í öruggu umhverfi sínu sem gæludýr í búri, sem hann hefur eytt allri ævi sinni í. Þegar Rango verður viðskila við eiganda sinn á ferðalagi í Kaliforníu álpast hann inn í smábæ. Þar sér hann happ í hendi þar sem hann getur þóst vera hver sem hann vill. Eftir mikla einveru í búri sínu telur hann nú að sér séu ætlaðir stórir hlutir í lífinu og nú sé ekki eftir neinu að bíða. Af einskærri heppni (eða óheppni) hlýtur hann starf fógetans í bænum og telur Rango sig vera á grænni grein. Annað kemur í ljós þegar honum er ætlað að leysa ráðgátu vatnsþurrks bæjarins og uppræta spillingu meðal æðstu máttarstólpa bæjarins, og verða hugrakka hetjan sem hann hafði í raun dreymt um að vera. Nú er eins gott að hann standi sig svo hann valdi ekki vonbrigðum.



























