Vaski grísinn Baddi 1995
Baddi grís horfir á þegar mamma hans er sett upp á vörubílspall og ekið í burtu. Svo er farið með litla grísinn hennar mömmu sinnar á markaðinn í sveitinni. Þar sjá forlögin til þess að leiðir bóndans Arthurs Hoggetts og Babe litla liggja saman. Báðir skynja að þessi kynni eiga eftir að verða örlagarík. Heima á bænum taka sum dýrin Babe opnum klaufum en nokkrar skepnur afhjúpa eigið svínslegt eðli með framkomu sinni við litla vingjarnlega grísalinginn. Baddi afræður að brjótast úr viðjum samfélagsins á bóndabænum, komast í ábyrgðarstöðu í dýraríkinu og gerast fjársvín. Hann kemur sér því í fóstur hjá Collie-hundinum á bænum, Fly, og lætur háðsglósur kattarins og annarra smásálna í umhverfinu sem vind um eyrun þjóta en heldur uppi röð og reglu í hjörðinni. Babe uppsker svo eins og hann hefur til sáð þegar hann tekur þátt í keppni smalahunda í héraðinu. Þar ræðst framtíð hans og svar fæst við spurningunni um hvaða framtíð bíði litla sæta gríssins.








