Dýrafjör

Dýrafjör 2010

5.60

Hið árlega flóð lætur á sér standa á Okavango sléttunni í Afríku. Vatnið er af skornum skammti og stutt í blóðugu baráttu um síðustu dropana. Jarðkötturinn Billy vill sanna sig fyrir syni sínum, Junior, og heldur því af stað í leit að vatni með besta vini sínum, Socrates, sem er ímyndunarveikt ljón. Á leiðinni hitta þeir fyrir ólíklegustu dýr, sem öll leita nýrrar búsetu þar sem heimili þeirra hafa eyðilagst í eldsvoðum, olíulekum eða öðrum slysum af völdum manna. Billy kemst að því hvers vegna vatnið hefur ekki enn flætt um sléttuna. Búið er að byggja stíflu til að mynda uppistöðulón í virkjun sem á að búa til næga orku fyrir lúxushótel. Þeir félagar leggja á ráðin um að ráðast inn og eyða virkjuninni en Socrates er fangaður í búr og á að senda hann til Las Vegas í sýningu. Þá ríður á að dýrin standi saman til að leysa vin sinn úr prísundinni og binda enda á vatnsvanda sléttunnar áður en allt er um seinan.

2010

Frosinn 2

Frosinn 2 2019

7.23

Hér segir frá því þegar þau Elsa, Anna, Kristoff, Ólafur og hreindýrið Sveinn halda norður á bóginn í leit að uppruna þess töframáttar sem Elsa býr yfir. Þar lenda þau í mögnuðu og verulega óvæntu ævintýri, en einnig hættum sem verða til þess að öfugt við ótta Elsu í fyrri myndinni um að kraftur hennar væri of mikill óttast hún nú að krafturinn verði ekki nægur.

2019

Cujo

Cujo 1983

6.16

1983